Marga eru eflaust farnir að hlakka til vorsins og enn aðrir bíða þess óþreyjufullir
að gata farið að gramsa í moldinni. Fljótlega rennur upp sá tími að hægt er að
fara að sá. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.

Yfirleitt er auðveldara en flesta grunar að rækta plöntur af fræi. Að vísu þarf að
vanda þarf vel allan undirbúning, gæta þess að verkfæri, bakkar og pottar séu
hreinir og að moldin sé laus við óæskilegar örverur. Allra best er að nota
sáðmold, sem hægt er að kaupa í Blómavali, eða svokallaðar sáðtöflur sem eru
sérstaklega ætlaðar fyrir fræ. Í töflunum er sáðmold sem lyftir sér þegar hún
blotnar og fræin skjóta rótum í hana. Í moldinni eru öll næringarefni sem
ungplönturnar þurfa og töflunum fylgir sá kostur að hægt er að planta
moldarkögglinum í stærri pott án þess að hreyfa við plöntunni sjálfri.

Þegar sáð er í gamla bakka eða potta verður að þvo ílátin með heitu sápuvatni og
hreinsa vel svo engin óhreinindi verði eftir og til að koma í veg fyrir
rótarhálsrotnum hjá ungplöntunum. Rótarhálsrotnun stafar af sveppasýkingu
sem lýsir sér í því að plönturnar verða svartar við rótarhálsinn og drepast.

- Vilmundur Hansen.