Sífellt er algengara að tré séu gróðursett að hausti enda ekkert því til
fyrirstöðu þar sem rætur trjánna halda áfram að vax þrátt fyrir að
ofanjarðarvöxturinn sé hættur.

Kosturinn við að gróðursetja að hausti er að plönturnar ná að festa
rætur og verða tilbúin til að hefja ofanjarðarvöxt strax næsta vor.

Við gróðursetningu trjáplantna, sama á hvaða árstíma, skiptir mestu að
rétt sé staðið að verki, að vinnubrögð séu vönduð og að eingöngu sé
plantað út góðum og hraustum plöntum.

Meðan á gróðursetningu stendur skal gæta þess að plönturnar verði
fyrir sem minnstu hnjaski og að moldin haldist sem mest á rótunum.
Rætur plantna þola illa sólarljós og útfjólubláir geislar sólarinnar fara
illa með þær. Því má ekki líða langur tími frá því að berrótarplöntur
eru teknar upp eða plöntur teknar úr potti þar til þær eru settar niður.

Sé nauðsynlegt að geyma plönturnar áður en þær eru gróðursettar skal
koma þeim fyrir á skuggsælum stað og vökva vel. Best er að
gróðursetja tré og runna áður en vöxtur hefst á vorin og strax eftir að
frost fer úr jörðu, eða á haustin eftir að hæðarvexti plantnanna lýkur.

Eftir að hæðar- og laufvexti lýkur á sumrin og brum hafa náð að
þroskast setja plöntur mikinn kraft í rótarvöxtinn. Það er tilvalið að
nota haustið til að gróðursetja eða flytja tré.

Eftir gróðursetningu að hausti er gott að setja þokkalegan stein við
hliðina á litlum trjám. Hann kemur í veg fyrir frostlyftingu og veitir
trénu skjól og yl. Stærri tré verður að festa niður með staur til að koma
í veg fyrir að þau fjúki um koll.

Fyrir gróðursetningu skal stinga upp beð eða holu í hæfilegri dýpt
fyrir tréð eða runnann og nauðsynlegt er að bæta lífrænum áburði í
jarðveginn til að gera hann safaríkari fyrir plöntuna. Æskileg dýpt
beða fyrir tré og runna er 40 til 50 sentímetrar eða tvær til þrjár
skóflustungur.

Varast skal að gróðursetja plöntur í dældir á flatlendi þar sem vatn
gæti safnast fyrir. Aldrei má gróðursetja tré dýpra en þau stóðu áður,
undantekning frá þessu er ösp og viðir.

Gott er að lyfta jarðveginum upp í svolítinn kúf og gróðursetja í hann
þannig að rótarháls plöntunnar nemi við hæstu holubrún. Greiða skal
ræturnar út í holuna eins og hægt er og gæta þess að plönturnar standi
lóðréttar í holunni. Síðan er mold mokað að og þjappað varlega að
rótunum þannig að plönturnar standi vel og séu ekki lausar í
jarðveginum.

Séu tré orðin meira en einn og hálfur metri á hæð er nauðsynlegt að
setja staur niður með þeim sem stuðning fyrstu árin á meðan þau eru
að ræta sig og koma sér fyrir. Eftir að plöntunni hefur verið komið
fyrir á sinn stað þarf að vökva vel og gæta þess næstu daga að
ræturnar þorni ekki.

- Vilmundur Hansen.