Heimsending - Höfuðborgarsvæðið að undanskildu Kjalarnesi

  • Alla virka daga
  • Pöntun þarf að berast fyrir kl. 13:00 á afhendingardag annars er hún afgreidd næsta dag.
  • Verð 1190 kr á almennun verslunarvörum.
  • Ath að vörur eru aðeins keyrðar heim að dyrum. 
  • Byggingavörur, s.s. timbur, plötur, flísar, múrblöndur o.fl. reiknast  á hærra flutningsverði en almennar verslunarvörur sökum þyngdar eða stærðar vörunnar. 

Pantað og sótt í verslunum um land allt

 

  • Pantað og Sótt pantanir á landsbyggðinni eru tilbúnar til afgreiðslu eftir 2-4 virka daga. Þær eru teknar til í vefverslun og síðan sendar með okkar flutningakerfi í þína verslun. 
  • Við sendum þér tölvupóst þegar þú getur sótt vöruna.
  • Vörur skal sækja á þjónustuborð í Húsasmiðjunni í Skútuvogi.
  • Stór heimilistæki og grill eru í sumum tilfellum sótt í vöruhús í Holtagörðum.
  • Framvísa skal kvittun þegar pöntun er sótt.
  • Sjá afgreiðslutíma Húsasmiðjunnar í Skútuvogi hér.

Heimsendingar - Landsbyggðin

  • Afhendingartími 2-4 virkir dagar
  • Þú færð vöruna senda heim að dyrum. Aðeins í boði þar sem Pósturinn býður upp á heimkeyrslu annars er vara flutt á næsta pósthús.
  • Ef pöntun berst eftir kl. 13:00 er hún send næsta virka dag.
  • Ef móttakandi er ekki heima þegar sending berst er sending flutt á næsta pósthús.
  • Þú færð sms þegar varan er á leiðinni til þín.
  • Nánari upplýsingar um heimsendingarþjónustu og skilmála Póstsins er að finna á www.postur.is

Timbursendingar á höfuðborgarsvæðinu

Hægt er að kaupa timbur, plötur, pallaefni o.fl. í vefverslun og fá það heimsent. ATH: Gildir ekki um kaup úr verslun. Sendum aðeins innan höfuðborgarsvæðisins. Fast verð fyrir akstur úr vefverslun á Höfuðborgarsvæðinu 12.900 kr. 

Blómasendingar Blómavals

Almennar blómapantanir

Almennar blómapantanir þurfa að berast fyrir klukkan 15:00 afhendingardag.

Stærri skreytingar verður að panta fyrir klukkan 14:00 afhendingardag.

Á laugardögum eru sendingar keyrðar út milli 12:00-15:00
Pantanir þurfa að berast fyrir 12:00 á laugardögum

Á sunnudögum eru blómasendingar ekki keyrðar út.

Blómasendingar eru ekki keyrðar í póstnúmer 116 og 271.

Blómasendingar Landsbyggð (um helgar!)
Blómapantanir sem eiga að afhendast úti á landi á laugardögum verða að berast fyrir klukkan 19:00 á föstudeginum.

Blómasendingar til Vestmannaeyja þurfa að berast 2-4 dögum fyrir áætlaðan afhendingardag.

EKKI ER HÆGT að afhenda blómasendingar úti á landi á sunnudögum því verslanir Blómavals á landsbyggðinni eru lokaðar.

Nánari upplýsingar um blómapantanir í síma 525-3180

Athugið að aðeins er hægt að panta eina sendingu í einu á pöntunarvef Blómavals.
Ef um margar sendingar / pantanir er að ræða verður að gera aðskildar pantanir á blómum.