GLUGGAR: VELFAC 200 ENERGY
- Upprunalega hönnunin
Einstök, stílhrein og tímalaus hönnun
Hleyptu dagsbirtunni inn með einstakri hönnun
VELFAC 200 ENERGY glugginn einkennis af einstakri, stílhreinni og tímalausri hönnun með einföldum og skörpum línum. Nettur karmur gluggans eykur glerflöt hans og þar með meiri dagsbirtu inn í húsið.
Gluggarnir passa vel í nýbyggingar og til endurbóta, þar sem flötur hússins að utan á að vera stílhreinn. Einstök hönnunin gerir það að verkum að engin sýnilegur munur er á gluggum, renni- eða svalahurðum, óháð opnunareiginleikum. Hönnunin undirstrikar hreinar línur hússins og gefur því spennandi og nútímalegt útlit.
Með valfrjálsu litavali að utan sem innan og miklu úrvali af aukahlutum, uppfyllir VELFAC 200 ENERGY kröfur til glugga í nútíma húsum.
Hönnunin mætir orkukröfum framtíðarinnar
Með VELFAC 200 ENERGY hefur þú möguleika á að ná orkuhagkvæmni og á sama tíma fá stílhreina og upprunalegu VELFAC 200 hönnunina. Nettir karmar og innarlega staðsett fúga, gefa glugganum svífandi útlit.
Betra loftslag innanhúss veitir aukin lífsgæði
Aukin dagsbirta í hversdagsleikanum eykur lífsgæði. Það skiptir því máli að nýta dagsbirtuna á sem bestann hátt. Einstök hönnun VELFAC 200 með nettum karmi, hleypir meiri dagsbirtu inn í húsið. Veljir þú hvíta eða ljósa áferð, endurkastast náttúruleg dagsbirtan inn í gegnum gluggann. Rýmið virkar þannig bjartara og notalegra, sem veitir aukin lífsgæði.
VELFAC 200 ENERGY
- Svífandi ramminn gefur snyrtilegt útlit
- Betri vörn gegn innbrotum þar sem glerlistar eru að innanverðu
- Þægilegt handfang með stílhreinni hönnun
Munurinn liggur í smáatriðunum
Það er ekki einungis litur og lögun sem skiptir máli til að fá sem besta nýtingu á nýju gluggana þína. Þú hefur fjölmarga valmöguleika á gleri og fylgihlutum, sem passa einmitt fyrir þitt hús og þínar þarfir. Þú getur alltaf spurt okkur ef þú ert í vafa - við aðstoðum þig.
Glerið
VELFAC Orkusparnaður
Fjöldi glerlaga í glugganum hefur áhrif á kyndiþörf og loftslag innanhúss. Við bjóðum lausn með 3ja laga gleri til að hámarka orkusparnað og loftslag innandyra.
VELFAC Hljóðvist
Utanaðkomandi hávaði getur valdið miklu áreiti. Búir þú við umferðargötu geta gluggar sem draga úr hávaða komið í veg fyrir að utan að komandi hljóðmengun berist inn. Þú munt því upplifa þægilega viðveru innandyra.
VELFAC Sólarljós
Sólvarnargler er áhrifarík aðferð til að halda hitastigi innanhúss jöfnu í rýmum sem snúa í suður og vestur. Það varnar innstreymi sólarljóss og kemur í veg fyrir ofhitnun, en hleypir á sama tíma mikilli náttúrulegri birtu inn.
VELFAC Öryggi
Hægt er að velja öryggisgler sem ekki splundrast og hrynur þegar glerið brotnar. Það lágmarkar hættuna á slysum og er notað í m.a. svalahurðir, rennihurðir, útihurðir og gólfsíða glugga.
VELFAC Décor
Décor-gler hindrar gegnsæi utan og innan. Það er notað t.d. í baðherbergisglugga og útihurðir. Hægt er að velja um 5 mismunandi tegundir.
Hljóðvist
Sólarljós
Öryggi
5 mismunandi tegundir af Décor gleri
Satin
Pacific
Cotswold
Carré
Mat lam
Aukahlutir
Mundu að þú getur aðlagað hurðir og glugga að þörfum fjölskyldunnar. Öryggisbúnaður veitir ró í hversdagsleikanum. Við veitum þér ráðgjöf og finnum réttu lausnina fyrir þig.
- Öryggislæsing takmarkar opnun gluggans við ca. 5cm. Losa þarf öryggislæsinguna með ákveðnum hætti svo hægt sé að galopna hann
- Handfang með barnalæsingu er með takka sem halda þarf inni, svo hægt sé að opna gluggann
- PN-öryggislæsing gerir innbrotsþjófum erfiðara fyrir
- Stormkrókur heldur svalahurðinni fastri við loftun
- Hægt er að fá læsanleg handföng
Öryggislæsing
Handfang m/barnalæsingu
Stormkrókur
Handfang m/lás
PN-öryggislæsing
Læsanlegt handfang
Hafðu samband
Fáðu tilboð og nánari upplýsingar hjá sérfræðingum okkar í Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar í síma 525 3000 eða tölvupósti gluggar@husa.is.
Heimasíða framleiðanda www.velfac.dk