Rétt áhöld létta þér verkin
Það þarf mörg handtök til að koma upp sælureit við heimilið eða frístundahúsið, hvort sem verið er að vinna verkið frá grunni eða endurbæta aðstöðu sem þegar er til staðar. Að mörgu þarf að hyggja, framkvæma jarðvegsskipti, grafa holur fyrir staurum og uppistöðum, saga staura og pallaefni.
Öll þessi verk kalla á fjölda sérhæfðra verkfæra, og þá kemur Áhaldaleiga Húsasmiðjunnar þér til aðstoðar. Þar er hægt að leigja flest þau verkfæri sem þarf við smíði og viðhald á heimilinu, pallinum eða garðinum.
Þar er hægt að leigja smágröfur og staurabora í undirbúning verka við smíði á pallinum, bútsagir, borvélar og önnur handverkfæri til smíðinnar og svo mætti lengi telja. Úrval verkfæra er mikið í Áhaldaleigu Húsasmiðjunnar en þó mismikið eftir verslunum, nánari upplýsingar eru veittar í síma 525 3000.
Áhöld fyrir garðvinnu og viðhald
Í Áhaldaleigum Húsasmiðjunnar er hægt að leigja margvísleg tæki fyrir viðhald og garðvinnu til að létta sér verkin.
Athugið að mismunandi úrval tækja er í boði á leigunum.
Áhaldaleigur um land allt
Í Áhaldaleigum Húsasmiðjunnar er hægt að leigja öll helstu verkfæri t.d. staurabora, bútsagir, borvélar og margt fleira og auðvitað garðverkfæri og kerrur.
Hvernig reiknast leigugjaldið?
- Hálfur dagur eru 5 klst. innan dagsins, eða 1 eining.
- Fyrsti sólarhringurinn er allt fram yfir 5 klst. og allt að 24 tímum, eða 1,8 einingar.
- Eftir fyrsta sólarhringinn reiknast 1 eining fyrir hvern hafin sólarhring.